Guðrún Valdimarsdóttir, aðstoðarmaður Skúla Mogensen.
Guðrún Valdimarsdóttir, aðstoðarmaður Skúla Mogensen.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Guðrún Valdimarsdóttir hefur verið ráðin í starf aðstoðarmanns Skúla Mogensen, forstjóra WOW air. Guðrún starfaði sem fjármálastjóri hjá Viðskiptaráði Íslands á árunum 2010 til 2012. Áður starfaði Guðrún sem forstöðumaður Sölusviðs hjá Kreditkorti. Guðrún er viðskiptafræðingur að mennt með MBA og M.Sc. í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.  Eiginmaður Guðrúnar er Hörður Felix Harðarson lögmaður og saman eiga þau þrjú börn.

Þá hefur Björn Ingi Knútsson verið ráðinn sem framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Wow air. Björn Ingi sat í stjórn WOW air frá stofnun félagsins.

Björn Ingi Knútsson.
Björn Ingi Knútsson.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Fram kemur í tilkynningu frá Wow air um ráðninguna að Björn Ingi er fæddur árið 1961. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum árið 1984, prófi í skipamiðlun frá London School of Foreign Trade árið 1985 og prófi í skipa- og hafnarekstrarfræði frá University of Wales í Cardiff árið 1987. Hann starfaði hjá Skipadeild Sambandsins og síðar Samskipum í ýmsum stjórnunarstöðum til ársins 1996 og var eftir það framkvæmdastjóri hjá Sofrana Unilines í Ástralíu og Nýja Sjálandi til 1998.

Björn Ingi var skipaður flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli 1. janúar árið 1999 og  gengdi því starfi til ársins 2008.  Hann var fastafulltrúi Íslands hjá Alþjóðaflugmálastofninni (ICAO) í Montreal árið 2005. Hann gengdi stöðu forstjóra Saltkaupa hf. frá 2008-2009. Björn Ingi hefur starfað sjálfstætt að verkefnastjórnun á Austurlandi frá árinu 2010. Björn Ingi er kvæntur  Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur sóknarpresti á Fáskrúðsfirði.