Áætlað var að WOW air myndi skila hagnaði á næsta ári en Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW, segist vera bjartsýnn á að það muni takast á þessu ári. Rekstrarhagnaður félagsins nam 184 milljónum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og rekstrartekjur námu 5,5 milljörðum króna.

VB Sjónvarp ræddi við Skúla.