Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, auglýsti eftir hraðbátnum sínum sem var stolið um síðustu helgi úr læstum skúr. Auglýstar voru 500 þúsund krónur í fundarlaun.

Fjöldi vísbendinga barst og að lokum fann lögreglan bátinn. Skúli segir að nú þurfi lögregla að ljúka rannsókn sinni á málinu áður en fundarlaunin verði greidd út.