Margir þekktir einstaklingar víða um heim hafa tekið þátt í ísfötu-áskoruninni á undanförnum dögum. Georg Bush fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Mark Zucherberg stofnandi Facebook, Bill Gates ríkasti maður heims og stofnandi Microsoft og David Moyes fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United eru meðal þeirra.

Á vef The Telegraph má sjá myndbönd af mörgum þeim sem hafa tekið þátt í áskoruninni.

Með áskoruninni er verið vekja athygli á MND sjúkdómnum og safna fé til rannsókna.

Skúli Mogensen eigandi flugfélagsins Wow air lét ekki sitt eftir liggja um helgina. Hér má sjá myndband af því þegar Skúli tekur þátt í áskoruninni.

Meðal þeirra sem Skúli skoraði á eftir að hafa fengið klakavatnið yfir sig er sjónvarpskokkurinn Friðrika Hjördís Geirsdóttir, kærasta Skúla.