Skúli Mogensen, stofnandi og fyrrverandi forstjóri og eigandi Wow air, telur að mun hagkvæmara væri fyrir að koma að björgun Wow air en að leyfa félaginu að fara í þrot.

„Það er löngu orðið ljóst að það hefði verið mun hagkvæmari fyrir ríkið að koma að björgun WOW heldur en að leyfa því að falla. Það var þegar búið að endurskipuleggja rekstur WOW og koma honum í sama horf og þegar best lét á árunum 2015/6, ríkið hefði hæglega getað gripið inn í líkt og Þjóðverjar gerðu með AirBerlin á meðan verið væri að tryggja langtíma fjármögnun félagsins. ," segir Skúli í stöðuuppfærslu á Facebook og tengir við frétt Mbl.is um áhrif falls Wow air á fjáraukalög.

„WOW skilaði ríkinu beint og óbeint tugum milljarða í ríkissjóð undanfarin ár svo ekki sé talað um heildar áhrifin sem WOW hafði á svo til alla verzlun og þjónustu í landinu. Það var hörmulegt að horfa á WOW falla og allt okkar frábæra fólk missa vinnuna. Svo það sé sagt þá er ég ekki að kenna ríkinu um hvernig fór né að draga úr minni ábyrgð heldur aðeins að benda á þá staðreynd að það hefði verið mun skynsamlegra að tryggja áframhaldandi rekstur WOW öllum til hagsbóta," segir Skúli.

Meðal þeirra sem brugðist hafa við ummælum Skúla er Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs. Hann spyr hvort það sé virkilega til umræðu að ríkið hefði átt að bjarga Wow air? Hann bendir á að sekt vegna losunarheimilda sem Umhverfisstofnun lagði á félagið eftir gjaldþrotið ein og sér slagi vel upp í þá fjárhæð sem Wow hafi talið sig þurfa til að halda rekstrinum gangandi. Þá hafi lýstar kröfur í þrotabú Wow air numið 138 milljörðum króna.