Hafrannsóknastofnun hefur lokið við rannsókn á erfðablöndun eldislax og náttúrulegs lax í laxastofnum á Vestfjörðum. Vísað var í rannsóknina í áhættumati Hafrannsóknastofnunar vegna mögulegrar erfðablöndunar frá laxeldi en þar var um óbirt gögn að ræða. Skýrslan er nú komin út segir í fréttatilkynningu frá stofnuninni.

Erfðablöndun mögulega í sex vatnsföllum

Í rannsókninni var erfðablöndun könnuð meðal náttúrulegra laxa í nágrenni eldissvæða á Vestfjörðum. Einnig var skyldleiki stofna svæðisins við aðra stofna á Íslandi kannaður með samanburði við 26 laxastofna. Samtals voru 701 seiði úr 16 vatnsföllum á svæðinu frá Súgandafirði til Rauðasands erfðagreind með 15 örtunglum.

Vísbendingar um erfðablöndun mátti greina í sex vatnsföllum og þar af voru skýr merki í Botnsá í Tálknafirði og í Sunndalsá í Trostansfirði sem er einn af innfjörðum Arnarfjarðar. Aldursgreining á blendingum tengdi erfðablöndunina við þekktar göngur kynþroska eldislaxa í vatnsföll á árunum 2014 og 2015.

Erfðablöndun árið 2012

Gögnin benda einnig til að erfðablöndun hafi orðið árið 2012 en líkt og árið 2015 voru engar sleppingar laxa úr sjókvíum tilkynntar þá. Greining á skyldleika vestfirsku laxastofnanna við aðra laxastofna á Íslandi bendir til að þeir myndi sérstakan erfðahóp og eru því líklega mikilvægir m.t.t. líffræðilegs fjölbreytileika.

Erfðablöndun við eldislax hefur breytt erfðasamsetningu margra villtra laxastofna á náttúrulegu útbreiðslusvæði lax í heiminum og valdið breytingum á þáttum sem snúa að lífsögu þeirra og hæfni. í Noregi er talið að erfðablöndun sé helsta ógnin við villta laxastofna þar í landi.

Laxeldi í sjókvíum einungis á ákveðnum svæðum

Á Íslandi hefur sjókvíaeldi á laxi af norskum uppruna verið stundað með hléum í nokkurn tíma og hefur framleiðslan jafnan verið fremur lítil eða nokkur þúsund tonn á ári. Leyfi hafa nú verið veitt fyrir 40.000 tonna eldi og til viðbótar bíða mats á umhverfisáhrifum áætlanir um tugþúsunda tonna framleiðslu.

Aðeins má stunda laxeldi í sjókvíum á ákveðnum svæðum við landið. Á þeim svæðum eru almennt takmarkaðar upplýsingar um stofna laxa og laxfiska og möguleg áhrif eldisins á villta laxastofna hafa til þessa ekki verið rannsökuð.