Ákveðið hefur verið að Skýrr hf. og Teymi ehf. verði sameinuð undir nafni Skýrr hf. Formlegur sameiningardagur hefur ekki enn verið ákveðinn.

Skýrr og Teymi eru dótturfélög Kögunar hf. sem er í meirihlutaeigu Dagsbrúnar hf., en Dagsbrún er skráð í Kauphöll Íslands.

?Skýrr stóreflir nú þjónustu sína á sviði Oracle-lausna og öðlast ný sóknarfæri á markaði, en við höfum fram til þessa einbeitt okkur að viðskiptalausnum Oracle. Einnig fáum við með samrunanum frábært fólk til liðs við okkur sem mikill fengur er í," segir Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr hf í tilkynningu félagsins.

"Teymi hefur um langt árabil átt náið samstarf við Skýrr. Fyrirtækin hafa lengi verið í eigu sömu aðila og deilt húsnæði. Samlegðaráhrif eru því mikil. Grunntæknilausnir Oracle verða nú seldar og þjónustaðar af ennþá öflugri aðila en fyrr og viðskiptavinir Teymis ættu því að fagna þessari sameiningu," segir Sigþór Samúelsson, framkvæmdastjóri Teymis.

Fyrirhugað er að Teymi verði hluti af Viðskiptalausnum Skýrr sem sérstakur hópur undir stjórn Sigþórs Samúelssonar. Framkvæmdastjóri Viðskiptalausna Skýrr er Eiríkur Sæmundsson.