Upphaflega stóð til að skýrslan yrði gefin út árið 2018, en eins og Viðskiptablaðið sagði frá í lok ágústs síðastliðins átti svo að skila skýrslunni þá fyrir árslok 2019. Í svari Seðlabankans við fyrirspurn Viðskiptablaðsins segir að viðbrögð við heimsfaraldrinum hafi valdið því að hlé hafi orðið á skýrslugerðinni.
Nokkurra mánaða vinna sé eftir þegar hægt verður að setja kraft í skýrslugerðina á ný, en eignasafninu var slitið í árslok 2017 . Í byrjun þess árs var sagt frá því að ESÍ fékk þrjá milljarða króna upp í kröfur vegna gjaldþrots Askar Capital hf., en félagið tapaði 250 milljónum árin 2014 og 215 á keðju lyfjaverslana í Úkraínu.
Skýrslunni er ætlað að veita viðamikið yfirlit um starfsemi félagsins og dótturfélaga auk þess sem beinn kostnaður hins opinbera af bankahruninu muni liggja endanlega fyrir. Haukur C. Benediktsson var framkvæmdastjóri ESÍ, en hann var ráðinn framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika hjá Seðlabankanum í nóvemberlok.
Hér má lesa frekari fréttir um Eignasafn Seðlabanka Íslands:
- 8. nóvember 2019 - Seinka skýrslum um sölu ríkiseigna
- 17. september 2017 - Gagnrýnir leyndarhjúp yfir ESÍ
- 9. september 2017 - Getur ekki upplýst um viðskipti ESÍ
- 20. ágúst 2017 - Spyr ítarlegra um Seðlabankann
- 23. mars 2017 - Þurfa ekki að greiða Ursus
- 11. janúar 2017 - Forðinn jókst um 163 milljarða
- 28. janúar 2016 - Hafnaði öllum tilboðum í Hildu
- 29. október 2015 - Eignir ESÍ hafa lækkað um 360 milljarða á sex árum
- 19. júní 2015 - ESÍ selur í Nýherja fyrir 245 milljónir
- 15. júní 2015 - ESÍ býður 5,8% hlut í Nýherja til sölu
- 27. desember 2013 - Verkefni ESÍ ekki boðið út
- 16. desember 2013 - ESÍ selur eignir fyrir rúma 100 milljarða
- 9. janúar 2012 - Seðlabankinn á gull fyrir 12 milljarða
- 3. september 2011 - Rýrt seljendalán
- 3. september 2011 - Eignir ESÍ lækkuðu um 136 milljarða
- 27. ágúst 2011 - Óheppileg eign Seðlabanka
- 20. febrúar 2011 - Sala erlendra eigna skýrir stækkun gjaldeyrisforðans