Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð er svo gott sem tilbúin og verður kynnt á næstu dögum. Lokafrágangur er eftir en nefndin hefur nú starfað í um 22 mánuði en upprunalega var áætlað að verkið tæki um 6 mánuði. Skýrslan hleypur á hundruðum blaðsíðna.

Nefndin átti að rannsaka starfsemi Íbúðalánasjóðs frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lánareglum hans árið 2004 og til ársloka 2012. Einnig átti að meta áhrif af breytingum, stefnu sjóðsins og einstökum ákvörðunum á fjárhag sjóðsins og fasteignamarkaðinn og áhrif starfsemi hans á stjórn efnahagsmála.

Fjallað er um málið í Fréttablaðinu í dag en þar segir að upplýsingar blaðsins hermi að stefnt sé að því að umræða geti farið fram um niðurstöður skýrslunnar á Alþingi áður en sumarþingi lýkur í byrjun júlí.

Sparisjóðaskýrslan líka tilbúin

Svipaða sögu er að segja af skýrslu rannsóknarnefndar um starfsemi sparisjóða sem var skipuð á sama tíma og nefndin um Íbúðalánasjóð. Sú skýrsla verður þó öllu lengri eða á pari við skýrsluna um bankahrunið. Þeirri skýrslu var skilað í apríl 2010 og verður prentuð útgáfa hennar um tvö þúsund blaðsíður.

Það sama er að segja um rannsóknarnefnd Alþingis um sparisjóðina, sem var skipuð á sama tíma. Skýrslu hennar verður skilað seinna, en á fundi með forsætisnefnd þingsins í febrúar greindi nefndarformaðurinn frá því að nefndin þyrfti fjóra mánuði enn til að ljúka verkinu, eða til loka júní.

Skýrsla sparisjóðanefndarinnar verður nánast jafnlöng og sú um stóru bankana þrjá sem skilað var í apríl 2010. Prentuð útgáfa hennar var um tvö þúsund blaðsíður.