Fatahönnuðurinn Alexander Wang ákvað að kynna haustlínuna með óvenjulegum hætti í ár. Íbúum New York var boðið að mæta á „óskilgreindan atburð“ sem ekki yrði endurtekinn, en engar frekari upplýsingar voru gefnar og ekki kom fram hver stæði á bak við boðið.

Þegar á hólminn kom beið gestanna stórt sjónvarpstjald og stutt skilaboð frá Wang. Hann sagði að á bak við næstu dyr væri að finna gríðarlegt magn af fatnaði og að fólk mætti taka eins mikið og það vildi endurgjaldslaust, en að enga poka eða kerrur væri að finna.

Að þessum orðum sögðum opnuðust dyrnar og eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi, sem er hluti af markaðsherferð Wang, voru gestirnir fljótir að láta hnefana tala.

Leikstjórinn Darren Stein sá um upptöku og klippingu, en Wang er mikill aðdáandi svörtu gamanmyndarinnar Jawbreakers sem Stein gerði árið 1999.