Oda Helen Sletnes tók í dag við starfi forseta ESA, eftirlitsstofnunar EFTA. Sletnes er skipuð í embættið frá 1. júlí 2011 til 31. desember 2013. Hún tekur við starfinu af Per Sanderud.

Í tilkynningu segir Sletnes að hún hyggst halda áfram að vinna það góða starf sem Sanderud hefur leitt. Trúðverugleiki stofnana EES sé ekki síst vegna góðs eftirlits, sem mikilvægt er að verði viðhaldið.