Greint var frá því í gær að Cadbury sælgætisframleiðandinn hafi innkallað ákveðnar vörur sem framleiddar eru í Kína vegna hættu á að þær kunni að innihalda melamín-mengaða mjólk.

Í tilkynningu frá Nóa-Siríus kemur fram að þeir ellefu vöruflokkar sem voru innkallaðir eru eingöngu seldir í Kína, Taívan, Hong Kong og Ástralíu. Enginn þeirra er seldur á Íslandi.

Nói Síríus er umboðsaðili fyrir Cadbury á Íslandi.

„Rétt er að taka fram að allt rjómasúkkulaði sem framleitt er af Nóa Síríus er framleitt úr íslenskri hágæðamjólk og inniheldur þess vegna ekki umrætt efni,“ segir í tilkynningunni.