Slippurinn á Akureyri átti lægsta tilboð af fjórum í lokaendurbætur Grímseyjarferjunnar Sæfara. Hljóðaði tilboð Slippsins upp á tæpar 13 milljónir króna. Næst lægsta tilboðið kom frá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og hljóðaði það upp á rétt rúmar 22 milljónir, þá bauð Vélsmiðja Orms og Víglundar tæplega 23 milljónir króna og Stálsmiðjan bauð rétt tæpar 27 milljónir króna í verkið.

Hefur verið ákveðið að ganga til viðræðna við Slippinn Akureyri um framkvæmd verksins. Í því felast nokkrir verkþættir svo sem að smíða dyr á stjórnborðssíðu sem verður aðalinngangur í ferjuna sem gerir hreyfihömluðu auðveldara um vik. Samskonar dyr verða settar á bakborðshliðina og verður neyðarútgangur. Þá verður skipt út um 22 fermetrum af stáli á byrðingi skipsins sem auðveldar og bætir klössun skipsins. Komið verður fyrir kælingu í efri flutningalestinni vegna fiskflutninga, og salernum verður breytt þannig að þau nýtist hreyfihömluðum á betri hátt en ella, auk nokkurra fleiri smærri verka.

Gert er ráð fyrir að vinna við skipið geti hafist á Akureyri 15. janúar og áætlaður verktími er þrjár vikur.

[email protected]