Slitnað hefur upp úr í viðræðum í sjómannadeilunni. Í dag funduðu samninganefndir útgerðarinnar, sjómanna og vélstjóra settust á fund hjá Ríkissáttasemjara klukkan eitt.

Þetta staðfestir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins, í samtali við Viðskiptablaðið.

Í yfirlýsingu frá SFS segir að „sjómenn víkist undan ábyrgð í kjaraviðræðum“ Hana er hægt að lesa hér:

Sjómenn víkjast undan ábyrgð í kjaraviðræðum

Sjómannasamband Íslands, Sjómannafélag Íslands og VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna tóku þá ákvörðun að slíta kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) í dag. Vegna þeirra miklu hagsmuna sem samfélagið allt hefur af því að verkfall sjómanna taki enda, telur SFS ábyrgð verkalýðsfélaganna ríka. Sjómenn og sjávarútvegsfyrirtæki hafa falið samninganefndum að ná ásættanlegum kjarasamningi og undan því verkefni leysa aðilar sig ekki með því að ganga frá samningaborði.

Í kjarasamningnum, líkt og samningum almennt, ber samningsaðilum að taka tillit til hvers annars og huga að hverju því málefnalega sjónarmiði sem gagnaðili setur fram. Í kjaraviðræðum SFS og samtaka sjómanna, hvort heldur viðræðum í aðdraganda samninganna tveggja sem sjómenn felldu á liðnu ári eða í þeirri samningalotu sem samtök sjómanna hafa nú gengið frá, hefur SFS unnið í samræmi við þessa grunnreglu. Verkalýðsfélögin þrjú hafa fengið ríka áheyrn um allar þær kröfur sem þau hafa sett fram og ríkur vilji hefur verið af hálfu SFS til að koma til móts við margar þeirra.

Tillitið hefur ekki verið gagnkvæmt og verkalýðsfélögin hafa því miður ekki ljáð máls á málefnalegum sjónarmiðum SFS. Það er miður að þau treysti sér ekki til að ræða allar hliðar kjaramála. Ljóst má vera að ógerlegt er að ganga að öllum kröfum þeirra.

Samninganefndir sjómanna, vísa því hins vegar til föðurhúsanna að það sé á ábyrgð sjómanna að gekk sundur á milli samningsaðila:

Vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin í kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna vilja samtök sjómanna að eftirfarandi komi fram:

Samninganefndir sjómanna, Sjómannasambands Íslands, Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Sjómannafélags Íslands lýsa yfir vonbrigðum að slitnað hefur uppúr viðræðunum. Ofangreind samtök sjómanna vísa því til föðurhúsanna að það sé á ábyrgð sjómanna að sundur gekk. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi treystu sér ekki að koma til móts við sanngjarnar og réttlátar kröfur sjómanna til lausnar deilunni.

Mikil og góð vinna hefur farið fram í samninganefndum sjómanna og útvegsmanna. Samskiptin hafa verið til fyrirmyndar og samninganefndirnar náð ágætlega saman. Góður árangur hefur náðst í nokkrum kröfum að mati samninganefndanna. Útvegsbændur eru ekki tilbúnir að koma til móts við meginkröfur sjómanna og þess vegna er málið komið á það stig að viðræður eru strand.

F.h. samninganefnda sjómanna

Valmundur Valmundsson