Kröfuhafafundur Kaupþings fer fram í dag. Fundinn sitja þeir sem hafa lýst kröfu á hendur Kaupþingi sem ekki hefur verið hafnað endanlega og þeir sem hafa keypt slíkar kröfur.

Fundurinn er auglýstur á vefsíðu slitastjórnar Kaupþings en þar er ekki tekið fram hvert fundarefnið er. Fundurinn fer fram í Silfurbergi í Hörpu.