Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á beiðni bráðabirgðastjórnar Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON) um skipun slitastjórnar fyrir Spron og Frjálsa fjárfestingarbankann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Spron en slitastjórnina skipa Hlynur Jónsson, héraðsdómslögmaður, LL.M., Jóhann Pétursson, hdl., og Hildur Sólveig Pétursdóttir, hrl.