Slitastjórn Glitnis og kröfuhafar bankans vilja skoða skráningu Íslandsbanka á markað hér á landi og á erlendan hlutabréfamarkað. Fundað var um málið á fundi slitastjórnarinnar í Bandaríkjunum í dag. Bandarískur fjárfestingarbanki hefur verið fenginn til að vinna með slitastjórn og kröfuhöfum að hugsanlegri skráningu bankans á markað, að því er fram kom í kvöldfréttum RÚV.
RÚV rifjaði m.a. upp að leitað hafi verið að áhugasömum kaupendum að hlut Glitnis í Íslandsbanka. Það hafi ekki borið árangur, þar á meðal ekkert áþreifanlegt tilboð borist í hlutinn frá fjárfestum í Asíu.
Glitnir á 95% hlut í Íslandsbanka á móti ríkinu sem á 5% hlut.