Enginn þeirra þriggja sem töluðu í pallborði ráðstefnunnar Iceland Invest Forum í London í síðustu viku töluðu máli sæstrengs að neinu ráði. Þremenningarnir voru þeir Höskuld Ólafsson, bankastjóri Arion banka, Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og lögfræðingurinn Guðmund J. Oddsson hjá Logos. Hugmyndin var nánast slegin út af borðinu en þeir Höskuldur og Orri voru sérstaklega tortryggnir á að verkefnið myndi ganga upp.
Það var Stuart Gill, sendiherra Bretlands á Íslandi, sem spurði þremenningana út í sæstrenginn en hann vildi fá að vita meira um áætlanir um lagningu raforkusæstrengs frá Íslandi til Bretlands. Ekki stóð á svörum og reyndust þau ef til beinskeyttari en sendiherrann átti von á.
Meðal annars bentu þeir á í svörum sínum á að það væri meira virði falið í því að nota orkuna í iðnað hérlendis og að ekki væri von á að það yrði meira virkjað fyrir slíkt verkefni.
Ítarlega er fjallað um ráðstefnuna í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum tölublöð .