Smáey ehf., sem er félag í einkaeigu Magnúsar Kristinssonar, undirritaði í dag samning um kaup á öllu hlutafé P. Samúelssonar hf. Þetta kom fram á blaðamannafundi í dag.

Magnús Kristinsson, nýr eigandi og umboðsaðili Toyota og Lexus á Íslandi, segir að kaup hans á fyrirtækinu byggist á því að þetta sé vel rekið fyrirtæki með gott starfsfólk sem hann beri fyllsta traust til og voni að haldi áfram störfum.

?Toyota-umboðið hefur ávallt lagt sig fram um að veita afburðaþjónustu og áherslan verður á að viðhalda og styrkja þann þátt starfseminnar auk þess að efla umboðið til lengri tíma. Toyota-bílar hafa verið þeir söluhæstu á Íslandi í mörg ár og það felast mörg sóknarfæri í Lexus-bílum sem hafa komið mjög sterkir inn á markaðinn undanfarin ár. Ég hlakka til að takast á við verkefnin sem eru framundan í samvinnu við starfsmenn,? segir Magnús.

Tekur Magnús við rekstri félagsins frá og með deginum í dag, 20. desember 2005, og verður hann stjórnarformaður félagsins.

P. Samúelsson hf. var stofnað 17. júní 1970 til innflutnings og sölu Toyota-bifreiða á Íslandi. Árið 1980 gerðist fyrirtækið beinn umboðsaðili Toyota Motor Corporation og hóf milliliðalausan innflutning bíla frá Japan. Var Toyota þá lítt þekkt bifreiðategund á Íslandi en á þessum tímamótum settu eigendur sér það markmið að Toyota yrði algengasta bifreiðategundin á Íslandi. Náðist það markmið árið 1988 þegar flestar bifreiðir í landinu voru orðnar af gerðinni Toyota þrátt fyrir að tegundin hafi aldrei orðið söluhæst á einu ári. Er þetta lýsandi fyrir þá stefnumörkun sem einkennt hefur rekstur félagsins þar sem langtímasjónarmið hafa verið höfð að leiðarljósi.

Toyota varð árið 1990 söluhæsta bifreiðategundin á Íslandi í fyrsta skipti og hefur haldið þeirri stöðu síðan. Fyrirtækið hóf sölu Lexus-bíla á Íslandi árið 2000 sem gengið hefur mjög vel í harðri samkeppni á markaði lúxusbíla á Íslandi. Í árslok 2002 hóf fyrirtækið innflutning og sölu á Yamaha-vélhjólum, snjósleðum og tengdum vörum.

Páll Samúelsson segir að ástæðan fyrir sölu félagsins nú sé sú að þeim árangri sem fjölskyldan setti sér með rekstri félagsins hafi verið náð.

?Fyrirtækið hefur náð yfirburðastöðu í fjölda bíla í umferð á Íslandi, verið söluhæst til margra ára, verið talið veita bestu þjónustu allra bílaumboða af viðskiptavinum til margra ára og verið rekið með góðum fjárhagslegum árangri. Það er því rétti tíminn til að selja nú og snúa sér að öðrum verkefnum,? segir Páll.

P. Samúelsson hf. er stærsta bílaumboð á Íslandi og hjá því starfa um 150 manns.

Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Páls og Magnúsar er kaupverð félagsins trúnaðarmál og ekki gefið upp.