Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman milli vikna í síðustu viku (rétt er þó að hafa í huga að engin viðskipti fóru fram s.l. föstudag, föstudaginn langa) eða um 16% og nam rúmlega 1,4 milljörðum króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Þrátt fyrir að veltan hafi minnkað lítillega milli vikna í síðustu viku er það engu að síður mesta veltan á einni viku í rúma þrjá mánuði ef undan er skilin vikan þar á undan (síðasta vikan í mars) en þá hafði veltan ekki verið meiri frá því í lok nóvember.

Fjögurra vikna meðalvelta er nú um 1.380 milljónir króna og hefur ekki verið hærri frá því í byrjun nóvember. Í lok desember fór fjögurra vikna meðalveltan undir milljarða og það var ekki fyrr en í lok febrúar sem veltan fór aftur yfir milljarð.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan en meðalveltan hefur minnkað um 36% milli ára sem er nokkuð minna en verið hefur síðasta árið. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Þess má geta að seinni part mars í fyrra fór veltan á fasteignamarkaði að dragast verulega saman þannig að mismunurinn á milli ára verður ekki ýkja mikill næstu vikur og mánuði með sama áframhaldi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 32 í vikunni en 41 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 52 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 33 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning var óvenju há í síðustu viku eða 44,5 milljónir króna og hækkar um rúmar 3 milljónir milli vikna. Eins og segir er það nokkuð yfir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljónir króna en tæpar 33,5 milljónir króna frá síðustu áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 35% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.