Erlendur ferðamaður sem leitaði til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík vegna alvarlegra veikinda í gær reyndist smitaður af veirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Maðurinn lést stuttu eftir komuna á stofnunina segir í tilkynningu frá Landlæknisembættinu.

Dánarorsök er þó ekki sögð liggja fyrir en sjúkdómseinkennin voru ekki dæmigerð fyrir COVID-19. Unnið er að því að skera úr um dánarorsökina, en í tilkynningunni segir að nú taki við margþætt vinna bæði varðandi andlát hans beint sem og stuðning við hans nánustu.

Þá þurfi einnig að styðja við og setja þá heilbrigðisstarfsmenn sem komu að meðferð mannsins í sóttkví, sótthreinsa heilsugæslustöðina ásamt því að tryggja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu fyrir Húsvíkinga.

Öll þessi verkefni eru unnin á vegum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í náinni samvinnu við sóttvarnalækni, landlækni, Rauða krossinn og er unnið í samstarfi við aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi eystra og heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík verður í lágmarki, en eins og áður sagði er allt kapp lag á að tryggja að hægt verði að halda uppi mikilvægri þjónustu við íbúa á starfssvæði hennar og aðra sem kunna að þurfa á þjónustu hennar að halda. Tilkynningar er að vænta um hvernig þjónustu verður hagað.