Þórður Bachmann og Hafsteinn Hasler eru nýir eigendur Restaurant Reykjavik. Þórður sagði í viðtali við VB Sjónvarp að ferðamannstraumurinn hefði verið mikill í sumar en ferðamennirnir sækja mikið í fiskréttina.

Hann tekur fram að veitingahúsamenningin hafi breyst í gegnum tíðina og nú snúist kvöldið meira um upplifun, gestirnir vilji láta koma sér á óvart.