Færeyska skipafélagið Smyril Line Cargo, sem á og rekur farþega- og vöruflutningaferjuna Norrænu, hefur ákveðið að hefja beinar siglingar milli Þorlákshafnar og Rotterdam í byrjun apríl á næsta ári.

„Engar breytingar eru fyrirhugaðar á rekstri Norrænu og einungis verður boðið upp á vöruflutninga á nýju siglingaleiðinni.  Fest hafa verið kaup á 19 þúsund tonna ferju sem tekur 90 tengivagna og 500 bíla í hverri ferð og á hún að hefja siglingar í byrjun apríl 2017,“ segir í fréttatilkynningu.

Flutningstíminn milli Þorlákshafnar og Rotterdam, verður sá stysti sem boðið er upp á í sjóflutningum milli Íslands og Evrópu. Búist er við því að ferjusiglingarnar komi til með að stuðla að vexti og atvinnuuppbyggingu á svæðinu.