Stjórn SMÁÍS, Samtaka myndrétthafa á Íslandi, hefur kært Snæbjörn Steingrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra samtakanna, til embættis sérstaks saksóknara.

Ákvörðun um kæruna var tekin eftir að fjárreiður samtakanna voru skoðuð þegar Snæbjörn lét af störfum. Snæbjörn starfaði sem framkvæmdastjóri í sex ár áður en hann sagði upp störfum seint á síðasta ári.