Ný stjórn Ungra athafnakvenna hefur tekið til starfa en hún var skipuð á aðalfundi félagsins 28. maí síðastliðinn. Frá fyrra starfsári sitja áfram þær Auður Albertsdóttir, Kolfinna Tómasdóttir og Snæfríður Jónsdóttir sem er jafnframt nýr formaður félagsins. Amna Hasecic, Björgheiður Margrét Helgadóttir og Vala Rún Magnúsdóttir voru kosnar nýjar inn í stjórn á aðalfundinum.

UAK var stofnað árið 2014 og fagnar því fimm ára afmæli í haust. Félagið hefur vaxið og dafnað síðustu ár og voru félagskonur rúmlega 300 talsins á síðasta starfsári. UAK vill stuðla að samfélagi þar sem konur og karlar standa jafnfætis og bjóðast sömu tækifæri.

Markmið félagsins er að styrkja stöðu og framtíð ungra kvenna sem stjórnendur og þátttakendur í atvinnulífinu með fræðslu og tengslamyndun. Félagið heldur um það bil tvo viðburði í mánuði og nær starfsárið síðan hámarki á ráðstefnunni UAK deginum sem fram fer í mars.

Opnunarviðburður nýs starfsárs fram 4. september næstkomandi og eru allir velkomnir. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um félagið á vefsíðunni www.uak.is.