Snjallræði, samfélagshraðall í umsjá KLAK, hefur valið 10 sprotafyrirtæki til að taka þátt í hraðlinum. Öll sprotafyrirtækin eiga það sameiginlegt að vilja leiða mikilvægar samfélagsbreytingar með því að nýta aðferðafræði nýsköpunar og hönnunarhugsun til að takast á við samfélagslegar áskoranir.

Sjallræði stendur yfir frá 23. ágúst til 7. desember og er haldið í samstarfi við MIT designX og munu sérfræðingar frá MIT koma til landsins og deila þekkingu sinni.

Eftirfarandi sportafyrirtæki komust áfram í Snjallræði:

BioBuilding

Ræktun framtíðarbygginga: íslensk hampsteypa og notkunarmöguleikar hennar.

Fort

Fort vinnur gegn hröðun á tapi vöðvamassa- og vöðvastyrk (acute-sarcopenia) hjá sjúklingum sem eru rúmfastir á spítala í lengri tíma með sérstakri fótapressu til að viðhalda vöðvastyrk.

Hringasveppir

Hringasveppir rækta sveppi á vistvænan hátt, í nálægð við neytendur, með einstakri hringhagkerfis lausn.

Hugmyndasmiðir

Verkefnið HUGMYNDASMIÐIR fræðir krakka um nýsköpun og dregur fram fyrirmyndir frumkvöðla af öllum kynjum, aldri, sviðum og landshlutum Íslands. Markmið verkefnisins er að efla frumkvöðlafærni krakka og hvetja þau til að skapa lausnir fyrir framtíðina.

Laufið

Laufið er nýr stafrænn vettvangur með hagnýtum verkfærum og hvatakerfi sem leiðir fyrirtæki og neytendur í vegferð að grænna og sjálfbærara samfélagi.

Okkar heimur

Okkar heimur starfar í þágu barna sem eiga foreldra með geðrænan vanda.

On To Something

On to Something (OTS) er alþjóðlegur rafrænn viðskiptavettvangur þar sem afgangsefni ganga kaupum og sölum.

Orb

Orb þróar tækni til að mæla kolefnisbindingu skóga á ódýran og aðgengilegan hátt til að stuðla að ábyrgri kolefnisjöfnun og framleiðslu vottaðra kolefniseininga.

Sara, stelpa með ADHD

Markmið Söru, ADHD stelpunnar, er að vekja athygli barna og þeirra sem standa þeim næst á mismunandi birtingarmyndir ADHD í stelpum og strákum. Við viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar svo að „týndu stelpurnar“ fái þá athygli, aðstoð og skilning sem þær þurfa.

Ylur

Hátæknigróðurhús með áherslu á hringrásarhagkerfið.