Apple Watch úrin hafa notið mikilla vinsælda, enda þykja þau bæði falleg og snjöll. Nýja úrið virðist þó sérstaklega vinsælt, en samkvæmt Bjarna Ákasyni, seldust þau upp núna í „Það hefur verið mikil eftirspurn eftir úrunum og þau eru nú uppseld hjá okkur. Við seldum alls eitt þúsund úr nú í desember en hefðum hæglega getað selt þrjú þúsund. Úrin eru persónulegasta varan sem Apple hefur framleitt, því hægt er að sníða þau eftir eigin smekk og útliti.“ Jólaverslunin hefur verið með blómlegasta móti í ár og hafa hagvísar bent til þess.