Síðastliðið föstudagskvöld héldu Bifreiðar og Landbúnaðarvélar árlega forsýningu á snjósleðum og vélhjólum frá Artic Cat. Margir áhugamenn um slík tryllitæki voru þarna saman komnir til þess bera gripina augum og gæða sér á heitri kjötsúpu í skammdeginu. Manna hressastur var án efa Jón Guðjónsson (85 ára), betur þekktur sem Johnny High Power, sem á heiðurinn af því að hafa flutt inn fyrstu snjósleðana  til landsins og hefur engu gleymt. Aðrir snjósleða og vélhljólaáhugamenn voru ánægðir með kvöldið og þá sérstaklega Finnur Ísfeld Sigurðson sölustjóri hjá B&L sem stóð að sýningunni.