Ríkisstjórn hægri manna í Svíþjóð hyggst leggja fram frumvarp sem miðar að því að koma í veg fyrir glufu í núverandi lögum um yfirtökur, sem heimila yfirtökuaðila í ákveðnum tilfellum að neyta innlausnarréttar þrátt fyrir að eiga einungis 67% hlutafjár í félaginu, segir í fréttaskeyti frá Dow Jones.
Eftir að nýja lagabreytingin tekur gildi mun þetta hlutfall hins vegar hækka upp í 90%.