Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda á 5 milljarða króna umfram skuldbindingar sínar samkvæmt uppgjöri sjóðsins fyrir seinasta ár sem nú hefur verið birt, eða sem nemur 5,6% af skuldbindingum. Hrein nafnávöxtun sjóðsins nam 6,1% og hrein raunávöxtun 0,2%, en til samanburðar má geta þess að meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðastliðin 5 ár er 8,7% og síðastliðin 10 ár 5,9%.    Hrein eign til greiðslu lífeyris er í árslok 55,6 milljarðar króna og óx um 5,1 milljarð króna eða um 10% frá fyrra ári.  Iðgjöld uxu um 22% og námu 2,5 milljarði króna.  Lífeyrisgreiðslur jukust um 27% og námu 638 milljónum króna.  Mest jukust greiðslur vegna ellilífeyris eða 32% og námu 397 milljónum króna.  Hlutfall ellilífeyris fer vaxandi sem hlutfall af heildarlífeyrisgreiðslum sjóðsins.    Rekstarkostnaður sjóðsins hækkar milli ára og nemur hann nú 0,13% af  eignum. Samkvæmt upplýsingum frá SL er helsta skýringin á þessu sú að nokkur kostnaður hlaust af flutningi skrifstofu sjóðsins í Borgartún 29. Eignasamsetning sjóðsins í árslok 2007 var þannig að innlend hlutabréf námu 11%, erlend verðbréf námu 24% og innlend skuldabréf námu 65% eigna. Sáttir við tryggingafræðilega stöðu Að mati forsvarsmanna Söfnunarsjóðs lífeyrisréttina er tryggingafræðileg staða hans góð og batni í raun  á milli ára því að á síðasta ári voru réttindi aukin um 5%. Var staðan eftir þá breytingu 4,2% í stað 7% eins og hún er birt í ársuppgjör. Staðan batnar því um 1,4%.    Séreignardeild sjóðsins skilaði ávöxtun í samræmi við markaðsaðstæður og var nafnávöxtun 4,0% og raunávöxtun –1,7%.  Hrein eign séreignardeildarinnar nam í árslok 2007 384,4 milljónum króna.