Innan ESB eru 12,8% raforku framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum, en hérlendis er þetta hlutfall 99,9%. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Árna Magnússonar forstöðumanns orkumála hjá Glitni á fundi SA um loftslagsmál og atvinnulífið í morgun.

Árni fjallaði um áherslu Glitnis á fjármálaþjónustu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, með sérstakri áherslu á jarðhita. Hann sagði bankann geta boðið umheiminum aðgang að gríðarlegri þekkingu á þessu sviði en áætlað er að eingöngu um 5% af virkjanlegum jarðhitasvæðum séu nú í notkun og sóknarfærin því mikil.