Lokagreiðsla vegna sölu 75% hlutar í Icelandair Hotels og tengdum fasteignum til Berjaya Land Berhad verður greidd í dag, en ekki 31. maí eins og áður hafði verið tilkynnt. Afhending á bréfum Icelandair Hotels fer fram í kjölfarið. Þá verður ný stjórn skipuð og þar tilnefnir Icelandair Group einn stjórnarmann og Berjaya tvo. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group .

„Vegna þeirra efnahagslegu óvissu sem ríkir vegna útbreiðslu COVID -19 veirunnar er það samkomulag milli aðila að lokagreiðslan verði lækkuð frá því sem áður var tilkynnt og mun hún nú nema 1,5 milljarði króna (10,3 milljónum bandaríkjadala ). Heildarkaupverð 75% hlutar er um 6,5 milljarðar króna (45,3 milljónir Bandaríkjadala) miðað við núverandi gengi," segir í tilkynningunni. Þetta þýðir að heildarkaupverð 75% hlutar lækkar um 10 milljónir dollara (1.450 milljonir króna) eða úr 55,3 milljónum í 45,3.

„Það er ánægjulegt að ljúka sölu á Icelandair Hotels á þessum tímapunkti," er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group í tilkynningunni. „Salan styður við stefnu okkar að leggja fyrst og fremst áherslu á kjarnastarfsemi Icelandair Group , flugrekstur, sem hefur aldrei verið mikilvægara en nú. Við erum stolt af því að hafa leitt uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu á undanförnum árum og þróun og vöxtur Icelandair Hotels var mikilvægur liður í því.

Ég vil nota þetta tækifæri og þakka starfsfólki Icelandair Hotels fyrir vel unnin störf við uppbyggingu gæðahótela sem bjóða framúrskarandi þjónustu og sanna íslenska upplifun. Þrátt fyrir þá óvissu sem nú ríkir í heiminum er ég sannfærður um að framtíðarhorfur íslenskrar ferðaþjónustu eru góðar. Kaup Berjaya endurspegla þá sýn og staðfesta gæði og virði hótelfélagsins sem verður helsti styrkur þess þegar kemur að því að grípa þau tækifæri sem gefast þegar fer að rofa til á ný.“

Berjaya Land Berhad er skráð félag í Malasíu og starfar meðal annars í hótelrekstri, smásölu og fasteignaþróun. Berjaya Land Berhad og tengd félög eru með um 4.700 starfsmenn og nema árlegar tekjur samstæðunnar 1.76 milljarði bandaríkjadala . Stofnandi og stjórnarformaður Berjaya Group er Vincent Tan.