Icelandic Group
Icelandic Group
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Söluferli er hafið á starfsemi Icelandic Group í Bandaríkjunum, og tengdri innkaupa- og framleiðslustarfsemi, þar með talið tiltekinni starfsemi í Asíu. Greint er frá söluferlinu á heimasíðu Icelandic Group.

Haft verður samband við mögulega kaupendur en Icelandic Group hefur ráðið  Merrill Lynch International (“BofA Merrill Lynch”), dótturfyrirtæki Bank of America Corporation, sem fjárhagslegan ráðgjafa  samstæðunnar við mat á stefnu félagsins og þeim kostum sem félagið hefur í þeim efnum. Söluferlið á starfsemi Icelandic Group í Bandaríkjunum og tengdri innkaupa- og framleiðslustarfsemi er hluti af þessu ferli.

Eigandi Icelandic Group er Framtakssjóður Íslands.