Söluferli á House of Fraser er hafið en slitastjórn Landsbankans fer með um þriðjungshlut í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í umfjöllun This Money í Bretlandi um Aurum dómsmálið hér á landi.

Don McCarthy stjórnarformaður Aurum og House of Fraser staðfesti að House of Fraser væri nú til sölu. Hlutur bankans í Aurum var seldur fyrir rúmri viku síðan til bandaríska fjárfestingasjóðsins Apollo. House of Fraser og Aurum voru á sínum tíma í eigu Baugs.