Skiptastjóri Wirecard hefur sagt að fjölmörg fyrirtæki hafi sýnt áhuga á að kaupa hluta af þýska fjártæknifyrirtækinu sem sótti um gjaldþrotaskipti fyrir viku síðan.

Michael Jaffé, einn af leiðandi sérfræðingum í flóknum gjaldþrotaskiptum í Þýskalandi, mun bráðlega leita til fjárfestingabanka til þess að sjá um mögulega sölu á nokkrum rekstrareiningum Wirecard.

Í tilkynningu frá því þriðjudag segir Jaffé að eftir að hafa fundað með fulltrúum lánveitenda sé helsta markmiðið að halda dótturfélögum Wirecard í rekstri og tryggja þeim rekstrargrundvöll. Tekjur Wirecard koma frá þóknunum af færslum smásala.

Sala á dótturfyrirtækjum Wirecard þarf að klárast á næstu vikum, annars glatast virði þeirra, segir fólk með þekkingu á málinu. „Wirecard á mjög fáar áþreifanlegar eignir, og hætta er á að margir af viðskiptavinum þess færi sig yfir til samkeppnisaðila,“ er haft eftir einum aðila í frétt Financial Times .

Jaffé, sem var kjörin skiptastjóri af dómstólum í Munchen í síðustu viku, nafngreindi engin nöfn mögulegra kaupenda.

Málið hefur nú þegar truflað þjónustu hjá viðskiptavinum sem nýta sér tækni Wirecard í gegnum ýmis konar fjártækniöpp (e. fintech apps). Breska fjármálaeftirlitið lagði bann á starfsemi breska dótturfélagið Wirecard Card Solutions en banninu var aflétt síðasta mánudag.

Wirecard North America, áður Prepaid Card Services í eigu bankans Citigroup, sem þýska fyrirtækið tók yfir árið 2016, var sett í söluferli fyrr í vikunni en fyrirtækið segir að starfsemi þess sé enn í gangi.

Gengi hlutabréfa Wirecard hefur fallið um meira en 95% frá því að fyrirtækið greindi fyrst frá því að 1,9 milljarðar evra væru týndir af efnahagsreikningi þess fyrir tveimur vikum síðan . Markaðsvirði félagsins hefur því lækkað um 12 milljarða evra.