Í afkomutilkynningum Origo hf. fyrir fjórða ársfjórðung 2017 og fyrsta ársfjórðung 2018, kom fram að áður tilkynnt söluferli á verulegum eignarhlut í Tempo ehf.,  í samstarfi við fjárfestingabankann AGC Partners í Boston, væri enn í vinnslu og gert væri ráð fyrir að því lyki fyrir mitt ár 2018. Nú liggur þó fyrir að söluferlinu muni ljúka seinna en áætlað var. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kauphöllinni.

Viðræður við áhugasama kaupendur hafa gengið vel en ferlið hefur tekið lengri tíma en reiknað var með í upphafi. Nú er ljóst að fyrrnefndur tímarammi var of knappur og söluferlinu mun ekki ljúka fyrir lok júní eins og áætlað var.

Félagið er í viðræðum við nokkra mögulega kaupendur og verður nánar gerð grein fyrir stöðu söluferlis í afkomutilkynningu í ágúst næstkomandi. eða þegar nýjar upplýsingar liggja fyrir.