Gengið hefur verið frá samningum um sölu á 25% eignarhlut Samherja hf. í Kaldbak hf. og mun félagið fá sem endurgjald hlutabréf í Burðarás hf. að nafnvirði kr. 279.737.963. Samningur þessi er gerður með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Burðarás hf. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að gera má ráð fyrir að hagnaður Samherja vegna viðskiptanna verði ríflega einn milljarður króna