Sólveig Baldursdóttir hefur verið ráðin til Athygli ehf. og mun hún ritstýra blaðinu Áfram á besta aldri sem Athygli festi kaup á fyrir skömmu.

Sólveig lauk BA prófi frá Boston University árið 1984 og hóf sinn blaðamannsferil árið 1987. Var hún meðal annars ritstjóri Gestgjafans 1998-2011. Sólveig hefur verið ritstjóri og útgefandi blaðsins Áfram á besta aldri frá því það var stofnað árið 2012. Hjá Athygli mun hún ritstýra því blaði og jafnframt skrifa í önnur blöð fyrirtækisins.