Breyting á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 31. maí var samþykkt einróma á fundi Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Eftir breytinguna skipar Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi forseti alþingis, heiðurssæti listans.

„Sólveig hefur í gegnum tíðina sinnt ótalmörgum félags- og trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík, meðal annars sem varaformaður Landsmálafélagsins Varðar, þingmaður fyrir Reykjavík, dómsmálaráðherra og forseti alþingis," segir í tilkynningu.

Á lista Sjálfstæðisflokksins eru fimmtán karlar og fimmtán konur, þar af fimm karlar og fimm konur í tíu efstu sætunum. Listinn er svona skipaður:

  1. Halldór Halldórsson - Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  2. Júlíus Vífill Ingvarsson - Borgarfulltrúi.
  3. Kjartan Magnússon - Borgarfulltrúi.
  4. Áslaug María Friðriksdóttir - Borgarfulltrúi.
  5. Hildur Sverrisdóttir - Borgarfulltrúi.
  6. Marta Guðjónsdóttir - Kennari & fyrsti varaborgarfulltrúi.
  7. Börkur Gunnarsson - Blaðamaður, rithöfundur og leikstjóri.
  8. Björn Gíslason - Slökkviliðsmaður & varaborgarfulltrúi.
  9. Lára Óskarsdóttir - Stjórnendamarkþjálfi & kennari.
  10. Herdís Anna Þorvaldsdóttir - Framkvæmdastjóri.
  11. Björn Jón Bragason - Sagnfræðingur.
  12. Elísabet Gísladóttir - Formaður íbúasamtakanna í Grafarvogi og lýðheilsufræðinemi.
  13. Örn Þórðarson - Ráðgjafi & fyrrverandi sveitarstjóri.
  14. Íris Anna Skúladóttir - Skrifstofustjóri.
  15. Ólafur Kr. Guðmundsson - Framkvæmdastjóri / Varaformaður FÍB.
  16. Hjörtur Lúðvíksson - Málari.
  17. Guðlaug Björnsdóttir - Deildarstjóri & formaður samninganefndar.
  18. Hulda Pjetursdóttir  - Viðskiptafræðingur.
  19. Sigurjón Arnórsson - Alþjóðlegur viðskiptafræðingur.
  20. Jórunn Pála Jónasdóttir - Laganemi.
  21. Viðar Helgi Guðjohnsen - Lyfjafræðingur.
  22. Sigrún Guðný Markúsdóttir -Framkvæmdastjóri.
  23. Kristinn Karl Brynjarsson - Verkamaður.
  24. Elín Engilbertsdóttir - Ráðgjafi.
  25. Rafn Steingrímsson - Vefforitari.
  26. Jóhann Már Helgason  - Framkvæmdastjóri.
  27. Aron Ólafsson - Nemi.
  28. Kolbrún Ólafsdóttir - Sérhæfður leikskólastarfskraftur.
  29. Kristín B. Scheving Pálsdóttir - Húsmóðir.
  30. Sólveig Guðrún Pétursdóttir - Fyrrverandi forseti alþingis.