George Soros
George Soros
© Aðsend mynd (AÐSEND)
George Soros hefur ákveðið að gera vogunarsjóð sinn að fjölskyldufyrirtæki og skilar því um milljarði Bandaríkjadala aftur til fjárfesta í vogunarsjóðnum. Með því að gera vogunarsjóð sinn að fjölskyldufyrirtæki flýr Soros nýtt og strangara regluverk um vogunarsjóði. Vogunarsjóður Soros verður eftir þessar breytingar engin smásjóður því eftir verða um 24,5 milljarðar bandaríkjadala í stýringu eða um 2.800 milljarðar íslenskra króna.