George Soros hefur tapað nær einum milljarði dala frá því að Donald Trump sigraði forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.

Svo virðist sem Soros hafi orðið afar svartsýnn eftir að Trump hafi sigrað og breytt fjárfestingarstefnu sinni í kjölfarið.

Þessi breytta stefna og svartsýni skilaði honum þó einungis tapi, enda hafa markaðir hækkað talsvert á væntingum til nýju ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Wall Street Journal hefur fjallað um tap Soros og sjóðstýringu hans.