Nú þegar 39 viðskiptadagar eru eftir af árinu í Bandaríkjunum er ekki útlit fyrir að S&P 500 vísitalan skili ávöxtun þennan áratuginn. Vísitalan mælir virði 500 veltumestu fyrirtækja á Bandaríkjamarkaði og þyrfti að hækka um 41% það sem eftir lifir árs til þess að enda á sléttu frá aldamótum.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans í dag en hagfræðideild Landsbankans segir tímabilið einkennast af tveimur slæmum niðursveiflum á hlutabréfamörkuðum, annars vegar þeirri sem nú virðist komin yfir versta hjallann og hins vegar þeirri sem varð í kjölfar þess að netbólan sprakk.

Hagfræðideildin segir að algeng fjárfestingarstefna sé að kaupa vísitöluna, þ.e. að fjárfesta í sjóðum sem fylgja vísitölunni eftir. Þá hafi tímabilið frá 2003 - 2007 verið afar gott fyrir fjárfesta sem fylgdu þessari stefnu. Aftur á móti sé ástandið sínu verra hjá þeim sem keyptu í sjóðum um aldamótin. Þeir hafi upplifað ansi miklar sveiflur og munu að öllum líkindum standa frammi fyrir tapi þegar áratugurinn rennur sitt skeið.

Sjá nánar í Hagsjá.