Matsfyrirtækið Standard and Poor´s hefur breytt horfum á matseinkunn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) úr stöðugum í neikvæðar.

Ástæðan er sú að 26. júlí sl. tilkynnti matsfyrirtækið að horfur á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hefðu breyst úr stöðugum í neikvæðar. Telur fyrirtækið að meta beri horfur TM í þessu efni með sama hætti og íslenska ríkisins.

Kjarnaeinkunn (e. anchor) TM er bbb sem er einu þrepi hærra en heildareinkunnin, en matseinkunn TM er sett í BBB- vegna lánshæfismats íslenska ríkisins.