Standard & Poor's
Standard & Poor's
© None (None)
Matsfyrirtækið Standard & Poor´s hyggst birta endurskoðað mat á lánshæfiseinkunnum 30 stærstu banka heimsins. Reuters fréttastofa greinir frá, og segir töluverðar líkur á að einkunnir einhverra banka verði lækkaðar.

Meðal fjármálastofnana sem gætu fengið lægri einkunnir eru Bank of America, Citigroup og Morgan Stanley. Þá gæti einkunn evrópskra banka einnig lækkað.