SP-Fjármögnun hefur lokið við fyrsta áfanga við endurútreikning gengistryggðra bílalána og kaupleigusamninga. Til fyrsta áfanga teljast samningar þar sem einn og sami skuldar hefur verið frá útgáfu lánsamnings.

Endurútreikningar vegna tæplega 7.000 samninga voru póstlagðir til viðskiptavina félagsins í gær.

Í tilkynningu frá SP-fjármögnun segir að viðskiptavinir í ofangreindum hópi geti skoðaði endurútreikning sinna lána á heimasíðu félagsins í dag.