Matsfyrirtækið Standard & Poors (S&P) hefur hækkað matseinkun norska tryggingafélagsins NEMI ASA í BBB úr BBB- . Þá eru horfurnar að mati S&P stöðugar. NEMI ASA er að fullu í eigu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) en í rökstuðningi S&P kemur fram að ástæða þótti til að hækka matseinkunina í framhaldi af jákvæðri niðurstöðu nýafstaðinnar hlutafjáraukningar TM og breytinga á hlutafjársafni félagsins.