Standard & Poors lækkaði í dag lánshæfismat ýmissa bandarískra stofnanna, sjóða og fyrirtækja. Einkunnir hálfopinberu íbúðalánasjóðanna Fannie Mae og Freddie Mac lækkuðu líkt og bandaríska ríkisins í AA.

Fjárfestingarfélag Warren Buffett, Berkshire Hathaway, hélt einkuninni AA en horfum var breytt í neikvæðar.

Fyrirtæki þar sem einkunin var lækkuð í AA með neikvæðum horfum voru: Knights of Columbus, New York Life Insurance Co., Northwestern Mutual, Teachers Insurance & Annuity Association of America and United Services Automobile Association.

Fyrirtæki sem héldu einkuninni AA en horfum breytt í neikvæðar voru: Assured Guaranty Corp., Berkshire Hathaway Inc. Massachusetts Mutual Life Insurance Co., Guardian og Western & Southern Financial Group Inc.