Matsfyrirtækið Standard & Poor's tilkynnti í dag að það hefði lækkað einkunn sína á Glitni sem mótaðila (e. counterparty credit rating) úr 'BBB+/A2' í 'BBB/A-3'.
Ennfremur lækkar fyrirtækið einkunn sína á víkjandi skuldabréfum (e. hybrid capital instruments) Glitnis í 'BB'.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Tilkynningin kemur í kjölfar tilkynningar þar sem S&P lækkar lánshæfismatseinkunn ríkissjóðs vegna skuldbindinga í erlendri mynt úr 'A/A-1' í 'A-/A-2'. Þá lækkar matsfyrirtækið einnig einkunn ríkissjóðs vegna skuldbindinga í íslenskum krónum úr 'A+/A-1' í 'AA-/A-1+'