Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn Íbúðalánasjóðs vegna lækkandi eiginfjárstöðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni og er lánshæfiseinkunn sjóðsins nú í svokölluðum ruslflokki. Lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum lækkar í 'BB+' úr 'BBB'.

Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt lækkuð í 'BB+' úr 'BBB-'. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum og erlendum myntum var lækkuð í 'B' úr 'A-3'. Þá voru lánshæfiseinkunnirnar teknar af athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Horfur eru neikvæðar.