Matsfyrirtækið Standard & Poor´s (S&P) hefur staðfest óbreytta lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar. Fyrirtækið uppfærir hins vegar horfurnar, þær fara úr neikvæðum í stöðugar.

Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar er BB.

Breytingin kemur í kjölfar staðfestingar S&P á lánshæfismati ríkissjóðs í gær.

Fram kemur í rökstuðningi S&P fyrir matinu nú að efnahagshorfur séu að batna hér á landi.